Velkomin á Hestaborg
Velkomin á hestaborg.is. Vefurinn veitir þér aðgang að söluskránni okkar, upplýsingum um þjónustu,
hestaferðir og fleira áhugavert sem við bjóðum hverju sinni. Við uppfærum upplýsingar hér jafnóðum og
breytingar verða svo þú getur alltaf gengið að nýjum og réttum upplýsingum á vefnum!
Hrossin okkar eru öll hreinræktuð íslensk hross og úrvalið er fjölbreytt þannig að flestir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi í söluskránni okkar. Ef þú sérð hér hest sem við erum ekki með á
söluskránni en þú hefur áhuga á að kaupa, þá er sjálfsagt að ræða málið og sjá hvort við náum saman um
viðskipti. Það getur alltaf borgað sig að hafa samband og sjá hvaða viðskipti við erum tilbúin að gera.
Við vonum að hér finnir þú það sem þú leitar að og hvetjum þig til að vera í sambandi við okkur ef
þér finnst eitthvað vanta upp á það efni sem við bjóðum eða ef þú vilt koma á framfæri ábendingum eða athugasemdum.